Heroclix spilið notar nýja og snjalla leið til að halda utan um hæfileika og stöðu fígúranna. Á bardagaskífunni er að finna nánast allar upplýsingar sem þarf þegar spilað er.

Hraði
Efsta talan í “L” laga glugganum er hraði fígúrunnar. Við hlið hennar er mynd af stígvéli (eða væng ef fígúran getur flogið). Hraðinn táknar hversu marga reiti fígúran getur hreyft sig þegar þú ákveður að hreyfa hana.

Árás
Næsta tala er árás fígúrunnar. Við hlið hennar er mynd af hnefa. Þegar þú ræðst á aðra fígúru (í návígi eða með skotárás) þá kastar þú tveimur sex hliða teningum og bætir við árás fígúrunnar. Ef það er samtals jafnt og/eða hærra en vörn varnaraðilans þá hefur árásin heppnast og gert skaða.

Vörn
Vörn fígúrunnar er neðst við hliðina á myndinni af skildinum. Það er sú tala sem árásaraðilinn þarf að fá þegar hann ræðst á fígúruna til að gera skaða.

Skaði
Skaðinn er neðst við hliðina á myndinni af sprengingunni. Skaðin segir hversu oft á að snúa botni óvinarins þegar árás hefur tekist hjá þér.

Færi
Talan við hlið eldingarinnar táknar hversu langt skotárás fígúrunnar drífur. Ef það er engin tala þá hefur fígúran ekki skotárás. Ef það eru fleiri en ein elding við hlið tölunar þá getur fígúran hugsanlega hitt fleiri skotmörk með hverri árás.

Ofurkraftar
Ef það eru litaðir ferningar undir einhverjum tölunum þá þýðir það að fígúran býr yfir einhverjum ofurkrafti tengt þeirri tölu (hreyfingu, árás, vörn eða skaða). Litirnir koma og fara eftir því sem fígúran særist og botninum er snúið. Nánari lýsing á öllum ofurkröftunum og hvað þeir gera í spilinu er að finna á ofurkraftaspjaldinu.

Hvernig á að spila Vörulisti Ofurhetjur Spilað í Nexus