Heroclix er spil þar sem ofurhetjum er att saman við ofurskúrka að hætti klassískra bandarískra myndasagna. Epísk átök góðs og ills, hingað til bundin við fjórlitaðan heim hasarblaðanna (og, nú á seinni tímum, kvikmynda) geta nú farið fram á stofuborðinu.

Bardagi á milli ofurmenna eru engin venjuleg slagsmál. Ofurmenni búa yfir ótrúlegustu kröftum og hæfileikum. Orkugeislar, ofurkraftar, flughæfileikar, ómannleg baráttufimi og margt fleira, hver ofurhetja hefur sín séreinkenni. Ofurhetjur njóta sín best þegar þær þurfa að klást við ofurskúrka, en af þeim er alltaf nóg að taka. Þeir hyggja yfirleitt á heimsyfirráð, eða í það minnsta að fremja hinn fullkomna stórglæp. Allar ofurhetjur eiga sína erkióvini, svarna fjandmenn eða konur, sem þeim tekst alltaf að sigra á endanum, en aldrei gersigra.

Heroclix spilið samanstendur að mestu leyti af fígúrunum sem tákna ofurhetjur eða ofurskúrka. Fígúrurnar eru samsettar og málaðar, tilbúnar til leiks beint úr pakkanum.

Stærri pakkar innihalda reglurnar og fyrirfram ákveðnar hetjur og skúrka, en í minni pakkana er raðað af handahófi, þannig að kaupandi veit ekki fyrirfram hvað hann fær. Sumar fígúrur eru sjaldgæfar og finnast ekki í nema einstaka pökkum. Í Heroclix spilinu fellst því líka ákveðin söfnun.

Á botni hverrar fígúru er skífa, sem inniheldur tæknilegar upplýsingar um styrk, þol, hæfni og ofurkraft hverrar fígúru. Þegar skífunni er snúið breytast tölurnar og það hefur áhrif á bardagahæfnina. Hlutkesti sker svo yfirleitt úr um hvort fyrirætluð aðgerð tekst eða ekki.

Spilið fer fram á sérstökum spilaborðum sem er skipt upp í reiti, ekki ósvipað skákborði. Spilaborðin sem fylgja með stærri pökkunum eru í raun stór plaköt sem eru lögð flöt á borð. Einnig er hægt að búa til sín eigin spilaborð með því að teikna þau á pappír.

Tveir eða fleiri geta spilað saman og skiptir fjöldi fígúra ekki máli, heldur einungis að allir séu með jafnsterk lið til að byrja með.

 

Hvernig á að spila Vörulisti Ofurhetjur Spilað í Nexus