Infinity
Challange
Bullseye - Infinity Challenge
Bullseye hefur þann hæfileika að geta hitt hvað sem
er með hverju sem er, pennar, spil, jafnvel dagblöð - hann
getur drepið með því að kasta næstum því
hverju sem er beint í mark. Hann er einnig mjög góður
í allskonar bardagalistum. Hann er einn af heimsins bestu launmorðingjum
og þjófum og einn af erkióvinum Daredevil eftir að
hafa drepið kærustu Daredevil, Electru. Hefur oft unnið
fyrir Kingpin.
Hulk - Infinity Challenge
Hulk er sterkur og næstum ómögulegt að skaða
hann að nokkru ráði. Hann er einn af sterkustu verum í
Marvel heiminum. Hann rústar byggingum á nokkrum sekúntum,
getur stökkið marga kílómetra í einu og
jafnar sig fljót, ef hann er skaðaður. Hulk varð til
þegar vísindamaðurinn Bruce Banner bjargaði Rick
Jones af tilraunasvæði fyrir Gamma sprengjuna sem Banner hafði
hannað. Banner varð fyrir mikilli geislavirkni og nú þegar
hann verður reiður breytist hann í Hulk - stóran
grænan sterkan risa með virkilega slæmt skap. Og því
reiðari sem hann verður, því sterkari verður
hann. Aðalóvinir hans eru Leader, Abomination, Avengers og
Bandaríski herinn. Hann var einn af stofnmeðlimum í
Avengers en helst ekki vel í liðum vegna skaps síns.
Quicksilver - Infinity Challenge
Quicksilver er stökkbreytur sonur hryðjuverkamannsins Magneto
og er bróðir Scarlet Witch. Hæfileiki hans felst í
því að hann getur hlaupið og hreift sig miklu hraðar
en venjulegur maður. Þótt hann sé ekki mjög
sterkur skiptir það ekki oft máli þar sem hann
kemur miklu fleiri höggum á anstæðinginn. Hann var
meðlimur í Brotherhood of Evil Mutants með Scarlet Witch
undir stjórn Magnetos en bæði hættu og gengu í
lið með Avengers. Hann er svo hrokafullur að mjög fáir
geta þolað hann lengi. Helsti óvinur hans er faðir
hans, Magneto.
Kingpin - Infinity Challenge
Kingpin er einnig þekktur sem Wilson Fisk Hann er helsti glæpaforingi
New York. Þótt hann hafi enga ofurkrafta er hann mjög
sterkur og hefur jafnvel sigrað Spider-Man eins síns liðs.
Þrátt fyrir að hann líti út fyrir að
vera feitur er mestmegnið af honum vöðvar. Hann hefur verið
aðalóvinur Daredevil, þótt að hann hafi einnig
oft barist við Spider-Man og Punisher.
Puppet Master - Infinity Challenge
Puppet master getur stjórnað öðrum í gegnum
brúður sem hann gerir úr galdra leir. Hann er faðir
kærustu The Thing, og hefur oft barist á móti honum
og Fantastic Four. Er ekki sterkur og hefur enga krafta nema í
gegnum brúðurnar.
Clobberin Time
A.I.M. Agent
AIM eru hryðjuverkasamtök sem hafa það að takmarki
að að ná heimsyfirráðum. AIM er skipað mörgum
vísindamönnum sem þróa vopn fyrir samtökin.
Aðalóvinir AIM eru SHIELD, Captain America, og Avengers.
Black Cat
Black Cat er atvinnudemantaþjófur. Hún hefur bæði
verið kærasta Spider-Man og óvinur hans.
Black Widow
Black Widow, Natasha Romanov, var njósnari fyrir KGB. Hún
barðist gegn Avengers í fyrstu en gekk síðan í
lið með þeim og hefur einnig unnið mikið fyrir SHIELD.
Hún er meistari í ýmsum bardagalistum og notar armbönd
sem skjóta orkuboltum sem geta rotað venjulegan mann í
stuttan tíma.
Blastaar
Blastaar er fjólublá ófreskja úr annari vídd,
Negative Zone, sem Mr Fantastic fann.
Blob
Blob er mutant sem getur breytt massa sínum svo að ekki er
hægt að hagga honum. Einnig hrökkva högg og byssukúlur
af honum. Hann vann í sirkusi þegar Magneto kom og fékk
hann til að ganga í lið með sér og berjast á
móti X-Men og mönnunum. Hann hefur einnig unnið sem atvinnuglæpamaður
en er ekki sérstaklega gáfaður og hefur ekki gengið
sérlega vel einum síns liðs.
Doombot
Doombot eru vélmenni sem Dr Doom notar oft. Vélmennin líta
út eins og hann og hafa sömu krafta. Öll vélmennin
hlýða Dr Doom og sum halda meira að segja að þau
séu Dr Doom. Hann skilur vélmennin oft eftir til þess
að stýra landi sínu meðan hann sinnir öðru.
Dr Doom
Dr Doom, Victor Von Doom, er erkióvinur Fantastic Four. Þegar
hann og Reed Richard voru í skóla saman var Doom í
mikilli samkeppni við Reed. Er Reed benti Doom á að tilraun
sem hann var að framkvæma væri ekki örugg hlustaði
Doom ekki á hann og tilraunin endaði með sprengingu. Slysið
afskræmdi andlit Dooms og hann kenndi Reed um það og taldi
hann hafa skemmt fyrir sér af ásettu ráði. Eftir
það einsetti hann sér að ná sér niðri
á Reed, fór til Tíbet og lærði galdra af
munkum þar. Þar smíðaði hann einnig grímu,
sem hann ber nærri alltaf, og herklæði sín. Síðan
hertók hann Mið-Evrópu landið Latveriu og hefur
friðhelgi sem leiðtogi þess. Það hefur ekki stoppað
hann í að reyna að drepa Fantastic Four aftur og aftur.
Dr. Doom er vel að sér í
göldrum og vísindum. Hann hefur meðal annars smíðað
tímavél, her vélmenna og er alltaf að bæta
við sig. Hann er einn af hættulegustu mönnum í Marvel
Universe. Þótt hann sjálfur hafi enga aðra krafta
en hugvit og kunnáttu í göldrum gefur brynjan hans
honum eiginleika til að berjast á móti sterkustu verum
- og hann er nánast aldrei án hennar.
Hawkeye
Clint Barton var ávalt góður bogmaður og þrátt
fyrir að hann hefði enga ofurkrafta gat hann barist við ofurhejur
með mismunandi örvum. Hann byrjaði með því
að berjast á móti Avengers með Enchantress sem Hawkeye.
En fljótt hætti hann sem glæpamaður og gekk í
lið með Avengers. Hann hefur ekki alltaf verið sammála
Captain America.
Human Torch
Johnny Storm er bróðir Susan Storm, Invisible Girl. Þegar
kærasta hennar vantaði fólk til að hjálpa
sér að stýra geimskutlunni sinni fór Johnny með
þeim. Í geimnum varð skutlan fyrir geimgeislun sem gaf
þeim öllum ofurkrafta og Johnny tók up nafnið Human
Torch. Hann getur umlukið líkama sinn eldi án þess
að brenna og einnig skotið og stjórnað eldi. Hann getur
líka flogið en hefur veikleika gegn vatni, sem getur slökkt
í honum. Hann er fljótfær og hefur lag á að
koma sér í vanda. Hann er vinur Spider-Man og hefur gaman
af að stríða honum en þó sérstaklega
að stríða Thing.
Mr. Fixit
Mr. Fixit er eitt af gervunum sem Hulk hefur notað. Grái Hulk
kallaði sig Fixit og vann fyrir mafíuna í Las Vegas.
Nick Fury
Nick Fury er leiðtogi SHIELD, hann barðist í seinni heimsstyrjöldinni
og þekkti Captain America þá. Mestan hluta æfinnar
hefur hann ekki haft neina ofurkrafta en vegna hernaðarþjálfunar
sinnar og vopnabúrs SHIELD hefur honum samt tekist að sigra
verr þjálfaðar ofurhetjur. Aðalóvinir SHIELD
og Fury eru hryðjuverkasamtökin Hydra og AIM, og sérstaklega
Baron Von Strucker, leiðtogai Hydra.
She-Hulk
Lögfræðingurinn Jennifer Walters var frænka Bruce
Banner, einnig þekktur sem Hulk. Eftir að hún var skotin
af glæpamönnum var henni ekki hugað líf. Eini ættingi
hennar sem gat gefið blóð var Banner. En með blóðgjöfinni
fékk hún einnig þann hluta af eiginleikum hans að
breytast í grænt skrímsli. Ólíkt honum
hefur hún hinsvegar góða stjórn á sér
og gekk fljótlega í lið með Avengers. Seinna gekk
hún einnig tímabundið í lið með Fantastic
Four. She-Hulk er ekki eins sterk og Hulk. Hún getur, eins og hann,
ferðast milli staða með því að taka risastökk
en stekkur ekki næstum því eins langt og hann.
Thing
Bejnamin Grimm, the Thing, var vinur Richard Reed í skóla.
Þegar Reed vantaði flugmann fyrir geimskutluna sem hann hannaði
stýrði Grimm henni. En þegar skutlan varð fyrir geimgeislun
öðluðust allir í henni ofurkrafta. Grimm breyttist
í appelsínugult skrímsli og kallaði sig Thing.
Þótt honum hafi stundum tekist að breytast aftur í
mennskt form hefur það aldrei enst. Sem Thing er hann mjög
sterkur og er ekki auðvelt að skaða hann. Hann hefur verið
ástfanginn af Alicia Masters. Aðalóvinir hans eru Dr
Doom, Puppetmaster,
Toad
Toad er mutant, hæfileikar hans felast aðallega í því
að geta stokkið. Hann var í Brotherhood of mutants undir
stjórn Magneto og hefur oft barist á móti X-Men.
White Queen
Emma Frost les hugsanir. Hún var í hellfire club og rak
skóla fyrir mutant krakka. En eftir að nemendur hennar voru
drepnir gekk hún í lið með X-Men. Kraftar hennar
hafa þróast og núna er hún lifandi demantur
og þar af leiðandi ansi seig.
Yellowjacket
Yellowjacket er eitt af mörgum dulnefnum Hank Pym. Sem Yellowjacket
getur hann minnkað sig niður í stærð vespu. Hann
getur einnig skotið orkuboltum. Sem Yellowjacket er Hank Pym frekar
óstöðugur og hann hefur barist gegn Avengers stöku
sinnum. Aðalóvinur hans var Egghead.
Fleiri ofurhetjur væntanlegar...
|