Ofurkraftar og liðshæfileikar.
Hraði - ofurkraftar
Grænn - Charge.
Þessi fígúra getur hreyft sig og gert návígisárás
í sömu umferð.
Þegar þessi fígúra fær hreyfi aðgerð
þá getur hún hreyft sig helming af því
sem hún getur hreyft sig venjulega og síðan gert návígísárás.
Árásin telst ekki vera önnur aðgerð og fígúran
fær ekki skaða eins og þegar fígúrur gera
tvær umferðir í röð. Fígúran getur
notað alla ofurkrafta sem þurfa návígísaðgerð
(eins og t.d. regeneration.)
Rauður - Flurry.
Þessi fí gura getur gert tvær árásir
með einni návígisaðgerð.
Gefðu þessari fígúru návígisaðgerð.
Hún má gera tvær árásir (tvö teningaköst)
á sama andstæðinginn eða á tvo mismunandi
andstæðinga (ef hún snertir þá báða).
Fígúran telst bara hafa gert eina aðgerð og má
nota ofurkrafta sem þurfa návígísaðgerð
í báðum árásunum.
Blár - Mind Controle.
Þessi fígúra getur notað skotárás
aðgerð til að gefa óvinafígúru aðgerð.
Gefðu þessari fígúru návígis eða
skot aðgerð. Ef árásin heppnast þá
máttu gefa andstæðingnum sem þú réðst
á aðgerð eins og þú ættir fígúruna
(er það ein af þínum aðgerðum???). Sú
fígúra fær aðgerðarmerki ef þú
lætur hana gera eitthvað. Ef Mind controle heppnast hjá
þér fær fígúran þín einn
í skaða fyrir hverja 100 punkta sem óvina fígúran
kostar. Ef fígúran þín drífur 0 reiti
þá drífur hún 4 reiti með þessari
árás.
Appelsínugulur - Leap/Climb.
Þessi fígúra getur hoppað/klifrað yfir fígúrur
og umhverfi á borðinu.
Þegar þessi fígúra hreyfir sig þá
má hún hreyfa sig framhjá og yfir óvínafígúrur
og í gegnum hindranir án þess að stoppa. Þessi
fígúra má enda hreyfinguna sína á svæði
sem er hærra uppi. Þessi fígúra má gera
árás á fígúru sem er á reit
upp við hana sama hversu hátt uppi eða niðri hún
er.
Gulur - Phasing. Þessi
fígúra getur látið sig hverfa og birtast annars
staðar á borðinu.
Þegar þessi fígúra hreyfir sig þá
skiptir umhverfi og aðrar fígúrur engu máli.
Hún lætur sig hverfa og birtist þar sem hún
vill. Hún getur samt bara hreyft sig þann fjölda reita
sem hún er með í hraða.
Svartur - Stealth.
Það er ekki hægt að skjóta í gegnum
hindranir á þessa fígúru.
Ef einhver ætlar að skjóta á þessa fígúru
og það er hindrun einhversstaðar í sjónlínunni
þá er ekki hægt að skjóta hana. Reiturinn
sem þessi fígúra er á telst með í
sjónlínunni.
Grár - Running shot.
Þessi fígúra getur hreyft sig og skotið í
sömu aðgerð.
Þegar þessi fígúra fær hreyfi aðgerð
þá getur hún hreyft sig helming af því
sem hún getur hreyft sig venjulega og líka gert skotárás.
Skotárásin telst ekki vera önnur aðgerð og
fígúran má nota alla ofurkrafta sem þurfa skotárásaraðgerð.
Árás - ofurkraftar
Grænn - Super Strength.
Þessi fígúra getur lyft þungum hlutum og notað
þau sem vopn,
Þegar þessi fígúra hreyfir sig þá
getur tekið upp hluti sem eru á reit sem fígúran
fer upp að (sjá kaflan um hluti í reglunum). Hlutir
auka skaðan sem fígúran gerir í návígi
og það er líka hægt að framkvæma skotárás
með þeim. Fígúra sem missir þennan ofurkraft
á meðan hún heldur á hlut setur hlutinn á
einhvern reit við hlið fígúrunnar.
Rauður - Blades/Claws/Fangs.
Þessi fígúra gerir 1 til 6 í skaða í
návígí.
Ef návígísárás þessarar fígúru
heppnast þá mátt þú kasta einum tening
og fígúran gerir það mikið í skaða
í stað þess skaða sem hún gerir venjulega.
Blár- Incapitate.
Þessi fígúra getur notað návígís
eða skot árás til að gefa andstæðingnum
aðgerðarmerki.
Þú mátt gefa fígúrunni skot eða
návígisárásar aðgerð sem gerir engann
skaða. Ef árásin heppnast og andstæðingurinn
hefur 0 eða 1 aðgerðarmerki, settu þá auka aðgerðarmerki
við fígúruna. Ef þetta er annað aðgerðar
merkið sem fígúran fær þá tekur hún
einn í skaða. Þessi ofurkraftur hefur enginn áhrif
á fígúrur sem hafa tvö aðgerðarmerki.
Appelsínugulur - Energy
Explosion. Skotárás þessarar fígúru
getur skaðað allar fígúrur sem eru á reit
við hlið skotmarksins.
Gefðu þessari fígúru skotárásaðgerð
og hún gerir 1 í skaða. Allar fígúrur
sem eru á reit sem snertir skotmarkið eru hugsanlega hittar
í sprengingunni (vinir og óvinir). Kastaðu teningunum
einu sinni. Berðu útkomuna saman við vörn allra fígúranna.
Þær sem eru hittar fá einn í skaða.
Gulur - Pulse Wave.
Skotárás þessarar fígúrur getur haft
áhrif á allar fígúrur innan helmings af venjulegu
færi hennar.
Gefu þessarar fígúru skotárás. Allar
fígúrir sem eru innan helmings af venjulegu færi fígúrunnar
eru hugsanlega hittar í árásinni (vinir og óvinir).
Kastaðu teningunum einu sinni og berðu niðrustöðuna
saman við vörn allra þeirra fígúra. Þær
sem eru hitta á fá einn í skaða. Það
skiptir ekki máli þó að einhverjar fígúrur
séu fyrir hvor öðrum. Ef það er bara ein fígúra
innan færis þá fær hún þann skaða
sem fígúran gerir venjulega.
Svartur - Steal Energy.
Þessi fægúra læknar sig þegar návígísárás
hennar heppnast.
Þessi fígúra læknar sig um 1 fyrir hvern 1 í
skaða sem hún gerir á fígúru í
návígisárás.
Grár - Telekinesis.
Þessi fígúra getur notað návígis
aðgerð til að hreyfa aðrar fígúrur eða
hluti. Hluti er hægt að nota sem vopn.
Gefðu þessari fígúru návígisárás.
Árásin gerir engann skaða. Ef árásinn
heppnast þá máttu færa hina fígúruna
allt að því 10 reiti í hvaða átt sem
er, hindranir og aðrar fígúrur eru ekki fyrir. Fígúran
verður að sjá reitin sem óvinafígúran
endar á. Þessi fígúra getur líka hreyft
vinafígúrurog hluti sem eru á reit upp við hana
(án þess að kasta teningum). Fígúruna eða
hluti sem eru hreyfðir er ekki hægt að setja á reit
þar sem er blokkandi umhverfi. Þessi fígúra
getur notað hluti sem vopn með Telekinesis (sjá kaflan
um hluti í reglubókinni).
Vörn - Ofurkraftar
Grænn - Energy Shield/Deflection.
Þessi fígúra hefur betri vörn gegn skotárásum.
Vörn þessarar fígúru er 2 hærri gegn skotárásum
og sprengingum.
Rauður - Super senses.
Þegar þessi fígúra getur komist hjá því
að verða fyrir árás.
Þegar árás hefur hitt þessa fígúru
(návígís eða skotárás) þá
mátt þú kasta einum tening. Ef 5 eða 6 kemur upp
hefur árásin engin áhrif á þessa fígúru.
Blár - Barrier.
Þessi fígúra getur búið til blokkandi umhverfi
á borðinu.
Gefðu fígúrunni hreyfi aðgerð en ekki hreyfa
hana. Hún býr til 4 reiti af blokkandi umhverfi einhversstaðar
innan færis fígúrunnar. Settu 4 Barrier pappamerki
á borðið eftir eftirfarandi reglum. Öll fjögur
merkin verða að vera á reitum upp við hvert annað
og mega ekki vera á sama reit og fígúra, hlutur eða
annað umhverfi. Það er ekki hægt að hreyfa sig
eða skjóta í gegnum reitina sem liggja á ská
upp við hvorn annan. Barrierinn notar allar sömu reglur og blokkandi
umhverfi. Það er hægt að fljúgja yfir barrierinn.
Barrierinn er tekinn af borðinu í byrjuninni á næstu
umferð þinni.
Appelsínugulur - Toughness.
Þessi fígúra minkar allan skaða sem hún
fær um einn.
Mínusaðu 1 frá öllum skaða sem þessi
fígúra fær í návígí, skotárásum
eða vegna ofurkrafta sem gera skaða. Þessi hæfileiki
minkar ekki skaða sem fígúra fær þegar hún
reynir á sig (gerir tvær umferðir í röð)
eða þegar árás hennar mistekst hraplega (hún
fær 2 á teningana).
Gulur - Defend. Þessi
fígúra getur deilt vörn sinni með öðrum
vinafígúrum.
Allar vinafígúrur sem eru á reit upp við þessa
geta notað varnar gildi hennar (ekki ofurkrafta) í stað
sinnar eigin varnar.
Svartur - Regeneration.
Þessi fígúra getur læknað sig allt að
því 4 snúninga.
Gefðu þessari fígúru hreyfi aðgerð en
ekki hreyfa hana. Kastaðu einum tening og mínusaðu 2 frá
tölunni sem þú færð. Niðurstaðan er
hversu marga snúninga þú mátt lækna fígúrunna.
Ef þú færð tölu sem er núll eða
minni þá læknast fígúran ekkert.
Grár - Invulnerability.
Þessi fígúra minkar allan skaða sem hún
fær um 2.
Mínusaðu 2 frá öllum skaða sem þessi
fígúra fær í návígí, skotárásum
eða vegna ofurkrafta sem gera skaða. Þessi hæfileiki
minkar ekki skaða sem fígúra fær þegar hún
reynir á sig (gerir tvær umferðir í röð)
eða þegar árás hennar mistekst hraplega (hún
fær 2 á teningana).
Skaði - ofurkraftar
Grænn - Enhancement.
Þessi fígúra eykur skaða sem vinafígúra
gerir með skotárás.
Sérhver vinafígúra sem framkvæmir skotárás
á meðan hún er á reit upp við þessa
fígúru bætir einum vð skaðan á allar
fígúrur sem verða fyrir árásinni.
Rauður - Ranged Combat
Expert. Þessi fígúra gerir 2 auka í
skaða með skotárás sinni.
Þessi ofur kraftur virkar ekki með öðrum ofurkröftum
(s.s. Enhancement eða Super Strength)
Blár - Probability
Controle. Þessi fígúra leyfir þér
að kasta einu tenigakasti aftur í þinni umferð og
láta andstæðinginn kasta einu teningakasti aftur í
sinni umferð.
Einu sinni í þinni umferð mátt þú
kasta einu teningakasti aftur og seinni útkoman gildir. Þessi
fígúra verður að vera innan 10 reita og með
sjónlínu á fígúruna sem er að framkvæma
kastið sem þú vilt kasta aftur. Þú getur
líka látið andstæðingin kasta aftur einu sinni
í sinni umferð. Þessi fígúra verður
að vera innan 10 reita og sjá fígúru andstæðingsins
sem er að framkvæma teningakastið. Ef það eru
margir að spila þá getur þú bara notað
þennan ofurkraft einu sinni þegar þú átt
ekki að gera.
Appelsínugulur - Battle
Fury. Þessi fígúra má ekki framkvæma
skotárás.
Mind Controle virkar ekki á þessa fígúru og
það er ekki hægt að halda á henni.
Gulur - Support. Þessi
fígúra getur læknað vinafígúrur.
Gefðu þessari fígúru návígísárásar
aðgerð. Ef það er vinafígúra á
reit upp við þessa og hvorug fígúran er á
reit upp við óvin þá máttu kasta teningunum
eins og þú væri að gera árás á
vinafígúruna. Ef árásin heppnast læknast
fígúran um 1 til 6 snúninga. Kastaðu einum tening,
niðurstaðan er hversu mikið hún læknast.
Svartur - Outwit.
Þessi fígúra notar hæfileika sína, reynslu
og heppni til að "slökkva" á einum ofurkrafti
óvinafígúru.
Einu sinni í þinni umferð getur þú slökkt
á einum ofurkrafti sem einhver óvinafígúra
hefur. Fígúran verður að vera innan við 10 reiti
frá óvinafígúrunni og hafa auða sjónlínu
í hana. Það er slökt á ofurkraftinum þangað
til að þú byrjar næstu umferðina þína.
Þú getur valið fígúru sem er fljúgandi
og slökt þannig á hæfileikanum hennar til að
fljúgja hátt. Ef að fígúran þín
missir Outwitt ofurkraftinn eða er rotuð þá fær
hin fígúran sinn ofurkraft strax aftur. Það kostar
ekki aðgerð að nota þennann ofurkraft.
Grár - Leadership.
Þessi fígúra getur bætt við einni við
fjölda aðgerða sem þú hefur í hverri
umferð.
Í byrjun umferðarinnar máttu kasta tening, ef þú
færð 4,5 eða 6 þá máttu bæta einni
aðgerð við fjölda aðgerða sem þú
hefur í þessari umferð. Það er mestalagi hægt
að bæta við einni aðgerð, sama hversu margar fígúrur
hafa Leadership ofurkraftinn.
Liðskraftar
Avengers - Avengers
meðlimir mega hreyfa sig án þess að nota til þess
hreyfiaðgerð. Merktu allar fígúrur sem hreyfa sig
á þennan hátt með aðgerðarmerki.
The Brotherhood - Avengers
meðlimir mega hreyfa sig án þess að nota til þess
hreyfiaðgerð. Merktu allar fígúrur sem hreyfa sig
á þennan hátt með aðgerðarmerki.
Defenders - Sérhver
Defender fígúra má nota hæsta varnargildi annara
Defender fígúra sem eru á reit upp við hana.
Fantastic four - Þegar
meðlimur Fantastic Four er sigraður þá læknast
allir aðrir Fantastic Four meðlimir um einn snúning.
Hydra - Sérhver
vinafígúra má bæta 1 við árásargildi
sitt í skotárás fyrir hverja Hydra fígúru
sem er á reit upp við hana. Hydra fígúrurna verða
líka að sjá skotmarkið.
Masters of Evil - Ef
tvær eða fleiri Masters of Evil fígúrur eru á
reit upp við sömu óvínafígúruna þá
mega þær allar ráðast á hana með einni
návígísaðgerð. Allar fígúrur
sem gera þannig árás fá aðgerðarmerki.
Minions of Doom - Meðlimir
Minions of Doom geta notað alla liðskrafta sem einhverjar
vinafígúrur hafa. Þær geta notað fleiri
en einn liðskraft í hverri umferð.
S.H.I.E.L.D - Vinafígúra
sem er á reit upp við SHIELD fígúru gerir 1 auka
í skaða með skotáras sinni. Þetta telst vera
hreyfiaðgerð fyrir SHIELD fígúruna þó
að hún hreyfi sig ekki.
Sinister Syndicate -
Sinister Sindicate fígúrur geta notað hæsta árásargildi
allra Sinister Sindicate fígura sem eru á reit upp við
hvor aðra.
Skrulls - Þegar
árás er gerð á þessa fígúru
þá þarf viðkomandi að kasta tening. Ef 6 kemur
upp þá hefur Skrull fígúran þóttst
vera vinur og árásaraðilin má ekki gera árás
á hana. Hún getur valið að gera árás
á einhverja aðra fígúru eða framkvæma
einhverja aðra aðgerð.
Spider-Man - Meðlimir
Spider Man liðsins geta notað alla liðskrafta sem einhverjar
vinafígúrur hafa. Þær geta notað fleiri
en einn liðskraft í hverri umferð.
X-men
- Tvær X-men fígúrur sem eru á reit upp við
hvor aðra geta skiptst á skaða. Gefðu annari fígurunni
einn í skaða og hin fígúran læknast um
einn snúning. Þetta telst vera hreyfiaðgerð fyrir
fígúruna sem fær skaðann þó svo að
hún hreyfist ekki.
|