Marvel Heroclix: Infinity Challenge

Í Infinity Challenge seríunni er hægt að fá um 150 mismunandi fígúrur úr Marvel heiminum.Infinity Challenge var fyrsta Heroclix serían sem var gefin út. Meðal fígúra sem er hægt að fá eru Hulk, Spiderman, Magneto, Captain America, Wolverine, Hobgoblin, Elektra, Sabertooth.

Infinity Challenge Pakki

Inniheldur 4 fígúrur af handahófí úr seríunni og 4 límmiða til að merkja fígúrurnar.

Verð: 999 kr.-

Infinity Challenge Kassi


Inniheldur allt sem þarf til að byrja að spila: 8 fígúrur af handahófi úr seríunni, reglubók (á ensku), spilaborð (prentað báðum megin), ofurkraftaspjald (á ensku), merkimiða og teninga.

Verð: 2799 kr.-

Infinity Challenge Premier Edition

Þessi kassi inniheldur 10 fígúrur og allt sem þarf til að byrja að spila. Fígúrurnar eru ekki valdar af handahófi heldur eru alltaf sömu fígúrurnar í hverjum kassa: Spider-Man, Wolverine, Elektra, Wolfsbane, Wasp, Hobgoblin, Sabretooth, Boomerang, Scarlet Witch og Kingpin. Að auki eru reglur, 2 spilaborð sem er prentað báðum megin (4 mismunandi spilaborð), teningar, límmiðar og merkimiðar.

Verð: 3999 kr.-

 

Marvel Heroclix: Clobbering Time

Clobbering Time er önnur serían í Marvel Heroclix. Áherslan er lögð á Fantastic Four ofurhetjuhópinn og óvini þeirra m.a. Mr. Fantastic, Invisible Girl, The Thing, The Human Torch, Doctor Doom og The Sandman. Í seríunni er 96 nýjar fígúrur og þar er líka að finna nýjar útgáfur af Spider-Man, Hulk, Wolverine, og Elektru. Clobbering Time serían er bara til í pökkum, það eru ekki framleiddir neinir Clobbering Time kassar.

Clobbering Time Pakki

Inniheldur 4 fígúrir af handahófi úr seríunni og 4 límmiða til að merkja fígúrurnar.

Verð: 999 kr.-

 

Hvernig á að spila Vörulisti Ofurhetjur Spilað í Nexus